January 2, 2010

Belgía 2009

Jæja gott fólk

Ég vil byrja á að óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs og þakka jafnframt fyrir öll samskipti mín við alla á liðnu ári. Þetta var gott ár í lífi mínu.

Meðal þess sem ég gerði á liðnu ári var að flytja til Belgíu. Það er ágætt að búa í Belgíu, fólkið er vingjarnlegt, skólarnir eru góðir, heilbrigðisþjónustan er víst góð, maturinn er góður, húsin eru falleg, borgirnar eru spennandi, tungumálið er læranlegt og nóg er að af öllu sem maður þarf í lífinu held ég.

Ég byrjaði á þessu bloggi hér til að segja frá ýmsu smálegu sem maður á ekki að venjast sem yfirgengilegur Íslendingur. Hér á eftir fer smá samantekt:

- Sígarettur og bjór í sjálfsölum, það er náttúrulega bara rosalegt.

- Hér má reykja á kaffihúsum og börum, sem er mjög notalegt. En hér tala ég sem reykingamaður.

- Franskar. Þessir belgar éta franskar í öll mál og með öllum mat, meira segja um jólin.

- Hamborgarar. Í þeirra huga er hamborgari eitthvað allt annað en hamborgari, nema náttúrulega á macdonalds. Kjötfarslufsa steikt upp úr feiti (án brauðs) með majónesi. Frekar ógeðslegt.

- Kokteilsósa er til hér og ég efast um að þeir hafi fengið hana að láni frá Íslendingum. Eins og það sé einhver uppfinning að blanda saman tómatsósu og majónesi.

- Majónes, það eru til svona 300 tegundir af majónesi og þær sem ég hef smakkað eru allar margfalt betri en Gunnars jukkið.

- Bjór er hér málið og hann er yfirleitt góður, og sterkur. Besti bjór sem ég hef smakkað um ævina er framleiddur hér í landi og heitir La Chauffe (eða eitthvað). Býð ykkur í bjór ef þið slysist til að heimsækja mig.

- Smekkleysa er ríkjandi vandamál hér eins og annarsstaðar, aðal tónlistarhetjurnar hér eru DJ Regi og Milow. Þið viljið ekki vita meira um það. Belgískir sjónvarpsþættir líta allir út eins og klámmyndir.

- Gent er frábær borg. Hér er nettur og smekklegur miðbær með öllu því sem stórborg hefur að bjóða, veitingastaðir eru góðir, barir eru töff, flottar búðir eru hér út um allt. Eitt kaffihús bíður upp á gott kaffi og það er nóg.

- Hér þurfa allir að keyra í klukkutíma til að komast í vinnuna, það er standard.

- Fólk tekur lestir milli borga, sérstaklega til Brussel, það er ekki fyrir eðlilegt fólk að keyra þar.

- Hér er yfirleitt ágætt veður, rignir soldið. Belgum finnst það slæmt veður þegar snjóar eða rignir. Ég var að ræða við grannann í gær um veðurhorfur og hann sagði að það væri von á vondu veðri, snjókomu og frosti. Ég spurði hann hvort það væri eitthver vindur með því, hann horfði á mig eins og ég væri fáviti. Krakkarnir í skólanum hans Styrkárs fara ekki út að leika sér þegar það rignir.

- Hér eru búðir lokaðar á sunnudögum og allar loka þær klukkan sex. Kaþólikkar.

- Það er frábær vinýlplötubúð í miðborg Gent, ég þarf að verða mér út um plötuspilara.

- Flæmingjar (55% belga) tala hollensku en skilja samt ekki Hollendinga, Vallónar (40% belga) tala frönsku en skilja samt ekki frakka og 5% þjóðarinnar tala þýsku og skilja ekki neitt. Opinberar stofnanir eru með allar upplýsingar á þessum þremur málum og ég skil ekk neitt.

Ætli þetta sé ekki nóg í bili. Í næsta pistli ætla ég að tala um tónlistina sem ég er búinn að vera að hlusta á undanfarið ár. Ég hef keypt mikið af tónlist (ekki stolið neinu, ekki einu lagi) og þykist vera hafsjór af upplýsingum um það hvað er inn og hipp og gott.