November 24, 2009

Fyrsta færsla Balla í Belgíu

Sæl nú öll sömul

Hér mun ég setja inn myndir og drasl sem sýna það sem á daga mína drífur hér í landi Flæmingja. Jú, ég bý í norðurhluta Belgíu meðal flæmingja sem tala afbrigði af hollensku. Dónalegir, heimskir, frönskumælandi og fátækir Vallónar (almenn skoðun flæmingja á samlöndum sínum) eru hér fáir og því ekki að óttast um afdrif okkar.

Belgar eru frægir fyrir þrennt. Súkkulaði, Bjór og Níðingsskap (á börnum annarsvegar og Kóngóbúum hinsvegar). Ég mun reyna að gera þessu þrennu góð skil sem og öðru sem ég kann að finna hér. Til dæmis er hér að finna fjölmargar spennandi tegundir af ostum, skinkum og frönskum. Frönskur eru trúarbrögð hér og ætla ég að tileinka mér þau að öllu leyti. Enda franskar góðar.

Svo ætla ég eitthvað að tala um Styrkár, son minn, þar sem hann er afar skemmtilegur strákur sem er að upplifa algerlega nýjan heim. Bráðum fer hann á leikskóla og mun að öllum líkindum tala nýtt mál fljótlega upp úr því.

Ætli ég reyni ekki eitthvað að tala um belgíska músík enda þörf á þar sem eini gæinn sem fólk kannast við héðan heitir Plastik Bertrand og gerðist svo frægur að vera höfundur lagsins “Einn dans við mig”, sem Hemmi Gunn gerði góð skil fyrir margt löngu.