November 2009
8 posts
Bjór
Ágæta fólk Matvöruverslanir í Belgíu selja bjór og vín. Úrvalið er mikið og hægt er að kaupa bjór í frá 250 ml flöskum upp í 2 lítra flöskur (borðbjór). Vínið er bæði létt og sterkt. Ég er samt ekki frá því að maður drekki meira fyrir vikið, en ég minna magni en áður. Ég hef verið að drekka 1-2 bjóra á kvöldi síðan á miðvikudag. Og í gær fór ég í Carrefour að kaupa í matinn og ýmsar aðrar...
Nov 29th
Djúpsteik
Belgar eru hrifnir af frönskum og nóg er af frönsku sjoppum um allt. Þessar sjoppur bjóða þó upp á miklu meira en franskar, þeir bjóða upp á allskyns pylsur, kjöt og kjúkling líka. Franskarnar á þessum stöðum er verulega góðar og þær eru framreiddar með dýrindis majonesi. Það er svo sem ekkert svo merkilegt. Það sem er merkilegt að þar er ekki að finna aðrar græjur en djúpsteikingarpott, og sá...
Nov 27th
Skrýtinn matur í Belgíu #1
Í dag keyptum við Styrkár okkur pylsu í smjördeigi. Þetta var meira eins og upprúllað kjötfars í smjördeigi. Kjötfarssmjördeig? Furðulega gott. hér er mynd af svona mat:
Nov 26th
3 notes
Gray's í Belgíu?
Ef eitthvað er verra en Gray’s Anatomy þá er það belgíska versjónið, De Co-Assistent á hinni frábæru stöð VIJFtv. Það var meira að segja Bon Iver lag í þættinum. Gubbaði smá upp í mig.
Nov 25th
Nov 25th
1 note
Skroppið til Hollands
Ágætu vinir Við Styrkár renndum til Hollands í dag til að sækja Loka og Stelpu úr flugi. Það var ekkert sérstaklega skemmtilegt. Mikill akstur, mikil bið hjá SwissCargo (eða eittthvað) og almenn vesen. Tók eftir nokkrum hlutum varðandi Holland meðan ég var þar. 1. Hollendingar bóna hraðbrautirnar sínar á nóttunni, það væri hægt að skauta að landamærum Belgíu. Þar tekur við frekar venjulegur...
Nov 24th
1 note
Nov 23rd
2 notes
Fyrsta færsla Balla í Belgíu
Sæl nú öll sömul Hér mun ég setja inn myndir og drasl sem sýna það sem á daga mína drífur hér í landi Flæmingja. Jú, ég bý í norðurhluta Belgíu meðal flæmingja sem tala afbrigði af hollensku. Dónalegir, heimskir, frönskumælandi og fátækir Vallónar (almenn skoðun flæmingja á samlöndum sínum) eru hér fáir og því ekki að óttast um afdrif okkar. Belgar eru frægir fyrir þrennt. Súkkulaði, Bjór og...
Nov 23rd