February 6, 2010
January 12, 2010

Belgía 2009 :: Viðauki 1

Smá viðbót við fyrri upptalningu mína:

- Vændishús er að finna víðsvegar um Belgíu, svipað og sjoppur heima á Íslandi. Þau eru alltaf opin. Sjoppur hinsvegar loka kl. 18 á daginn og eru lokaðar á sunnudögum.

- Talandi um svínarí, Bensínlíterinn kostar 1,3 evru að jafnaði eða 235 kr.

January 2, 2010

Belgía 2009

Jæja gott fólk

Ég vil byrja á að óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs og þakka jafnframt fyrir öll samskipti mín við alla á liðnu ári. Þetta var gott ár í lífi mínu.

Meðal þess sem ég gerði á liðnu ári var að flytja til Belgíu. Það er ágætt að búa í Belgíu, fólkið er vingjarnlegt, skólarnir eru góðir, heilbrigðisþjónustan er víst góð, maturinn er góður, húsin eru falleg, borgirnar eru spennandi, tungumálið er læranlegt og nóg er að af öllu sem maður þarf í lífinu held ég.

Ég byrjaði á þessu bloggi hér til að segja frá ýmsu smálegu sem maður á ekki að venjast sem yfirgengilegur Íslendingur. Hér á eftir fer smá samantekt:

- Sígarettur og bjór í sjálfsölum, það er náttúrulega bara rosalegt.

- Hér má reykja á kaffihúsum og börum, sem er mjög notalegt. En hér tala ég sem reykingamaður.

- Franskar. Þessir belgar éta franskar í öll mál og með öllum mat, meira segja um jólin.

- Hamborgarar. Í þeirra huga er hamborgari eitthvað allt annað en hamborgari, nema náttúrulega á macdonalds. Kjötfarslufsa steikt upp úr feiti (án brauðs) með majónesi. Frekar ógeðslegt.

- Kokteilsósa er til hér og ég efast um að þeir hafi fengið hana að láni frá Íslendingum. Eins og það sé einhver uppfinning að blanda saman tómatsósu og majónesi.

- Majónes, það eru til svona 300 tegundir af majónesi og þær sem ég hef smakkað eru allar margfalt betri en Gunnars jukkið.

- Bjór er hér málið og hann er yfirleitt góður, og sterkur. Besti bjór sem ég hef smakkað um ævina er framleiddur hér í landi og heitir La Chauffe (eða eitthvað). Býð ykkur í bjór ef þið slysist til að heimsækja mig.

- Smekkleysa er ríkjandi vandamál hér eins og annarsstaðar, aðal tónlistarhetjurnar hér eru DJ Regi og Milow. Þið viljið ekki vita meira um það. Belgískir sjónvarpsþættir líta allir út eins og klámmyndir.

- Gent er frábær borg. Hér er nettur og smekklegur miðbær með öllu því sem stórborg hefur að bjóða, veitingastaðir eru góðir, barir eru töff, flottar búðir eru hér út um allt. Eitt kaffihús bíður upp á gott kaffi og það er nóg.

- Hér þurfa allir að keyra í klukkutíma til að komast í vinnuna, það er standard.

- Fólk tekur lestir milli borga, sérstaklega til Brussel, það er ekki fyrir eðlilegt fólk að keyra þar.

- Hér er yfirleitt ágætt veður, rignir soldið. Belgum finnst það slæmt veður þegar snjóar eða rignir. Ég var að ræða við grannann í gær um veðurhorfur og hann sagði að það væri von á vondu veðri, snjókomu og frosti. Ég spurði hann hvort það væri eitthver vindur með því, hann horfði á mig eins og ég væri fáviti. Krakkarnir í skólanum hans Styrkárs fara ekki út að leika sér þegar það rignir.

- Hér eru búðir lokaðar á sunnudögum og allar loka þær klukkan sex. Kaþólikkar.

- Það er frábær vinýlplötubúð í miðborg Gent, ég þarf að verða mér út um plötuspilara.

- Flæmingjar (55% belga) tala hollensku en skilja samt ekki Hollendinga, Vallónar (40% belga) tala frönsku en skilja samt ekki frakka og 5% þjóðarinnar tala þýsku og skilja ekki neitt. Opinberar stofnanir eru með allar upplýsingar á þessum þremur málum og ég skil ekk neitt.

Ætli þetta sé ekki nóg í bili. Í næsta pistli ætla ég að tala um tónlistina sem ég er búinn að vera að hlusta á undanfarið ár. Ég hef keypt mikið af tónlist (ekki stolið neinu, ekki einu lagi) og þykist vera hafsjór af upplýsingum um það hvað er inn og hipp og gott.

November 29, 2009

Bjór

Ágæta fólk

Matvöruverslanir í Belgíu selja bjór og vín. Úrvalið er mikið og hægt er að kaupa bjór í frá 250 ml flöskum upp í 2 lítra flöskur (borðbjór). Vínið er bæði létt og sterkt.

Ég er samt ekki frá því að maður drekki meira fyrir vikið, en ég minna magni en áður. Ég hef verið að drekka 1-2 bjóra á kvöldi síðan á miðvikudag. Og í gær fór ég í Carrefour að kaupa í matinn og ýmsar aðrar nauðsynjar og keypti óvart 3 bjóra bara að því að ég var við bjórganginn.

Foræðishyggja á þessu sviði er að mínu mati nauðsynleg, Helga þarf að setja mig straff víst að evrópusambandið gerir það ekki.

November 27, 2009

Djúpsteik

Belgar eru hrifnir af frönskum og nóg er af frönsku sjoppum um allt. Þessar sjoppur bjóða þó upp á miklu meira en franskar, þeir bjóða upp á allskyns pylsur, kjöt og kjúkling líka. Franskarnar á þessum stöðum er verulega góðar og þær eru framreiddar með dýrindis majonesi.

Það er svo sem ekkert svo merkilegt. Það sem er merkilegt að þar er ekki að finna aðrar græjur en djúpsteikingarpott, og sá pottur er stór. Allur maturinn þar er djúpsteiktur. Ég yrði ekki hissa ef það væri hægt að fá djúpsteikt majónes.

Ég fékk mér djúpsteikt kjöt, svokallaða djúpsteik.

November 26, 2009

Skrýtinn matur í Belgíu #1

Í dag keyptum við Styrkár okkur pylsu í smjördeigi. Þetta var meira eins og upprúllað kjötfars í smjördeigi. Kjötfarssmjördeig?

Furðulega gott.

hér er mynd af svona mat:

November 25, 2009

Gray’s í Belgíu?

De Co-assistantEf eitthvað er verra en Gray’s Anatomy þá er það belgíska versjónið, De Co-Assistent á hinni frábæru stöð VIJFtv. Það var meira að segja Bon Iver lag í þættinum. Gubbaði smá upp í mig.

Á leið í bakaríið og til slátrara þá hittum við þennan félaga. Hann býr í næsta húsi við okkur og er í fíling.

Á leið í bakaríið og til slátrara þá hittum við þennan félaga. Hann býr í næsta húsi við okkur og er í fíling.

November 24, 2009

Skroppið til Hollands

Ágætu vinir

Við Styrkár renndum til Hollands í dag til að sækja Loka og Stelpu úr flugi. Það var ekkert sérstaklega skemmtilegt. Mikill akstur, mikil bið hjá SwissCargo (eða eittthvað) og almenn vesen. Tók eftir nokkrum hlutum varðandi Holland meðan ég var þar.

1. Hollendingar bóna hraðbrautirnar sínar á nóttunni, það væri hægt að skauta að landamærum Belgíu. Þar tekur við frekar venjulegur vegur (svipaður og Reykjanesbrautin).

2. Útvarp í Hollandi sýgur drullu, útvarp í Belgíu er mun betra. Kannski voru þeir að segja eitthvað gáfulegt milli þess sem spiluð var popptónlist með viðbættum teknótakti en ég leyfi mér að efast um það.

3. A4 Hotel er hótel sem er byggt ofan á hraðbraut í útjaðri Amsterdam. Hótelið ásamt fatabúð, Burger King og La Place var byggt yfir hraðbrautina (eins og brú). Ótrúlegt að einhver vilji gista þar.

4. Það er vörubílalest á hægri akrein (granny lane) frá amsterdam til Gent (og örugglega lengra og víðar). Vörubílar allan tímann allstaðar. Íslendingar ættu að hætta að kvarta.

Fleira áhugavert varð ekki á vegi mínum.

Á morgun mun ég fjalla um hvernig stórfjölskyldan er að fíla sig hér í útjaðri Gent.

Ég, nýkominn til belgíu, með ný gleraugu sem voru keypt í fríhöfninni.

Ég, nýkominn til belgíu, með ný gleraugu sem voru keypt í fríhöfninni.